Erfðaréttur og dánarbú
Erfðaskrá er mikilvæg leið til að tryggja að eignum þínum verði ráðstafað í samræmi við vilja þinn. Með henni getur þú tekið skýrar ákvarðanir um skiptingu eigna, tryggt rétt maka og annarra nákominna innan þeirra marka sem lög heimila og dregið úr líkum á ágreiningi milli erfingja.
Gerð erfðaskrár veitir öryggi og skýrleika fyrir þig og fjölskyldu þína. Hún er sérstaklega mikilvæg ef fjölskylduaðstæður eru flóknar, um er að ræða sambúð, stjúpfjölskyldu eða ef þú vilt tryggja að ákveðnar eignir eða fjármunir renni til tiltekinna aðila.
Vel unnin erfðaskrá tryggir að síðasti vilji þinn komi skýrt fram og auðveldar erfingjum uppgjör dánarbús á erfiðum tímum.
Helstu aðstæður þess að gera erfðaskrá
Seta í óskiptu búi. Ef afleifandi vill tryggja maka sínum setu í óskiptu búi. Sérstök þörf ef sameiginlegum niðjum er ekki til að dreifa.
Séreign. Ef arfleifandi vil tryggja að arfur eftir hann verði séreign barna þarf að kveða á um það í erfðaskrá.
Ráðstöfun eigna til annarra en lögerfingja: Ef einstaklingur vill að tilteknir vinir, skyldmenni sem eru ekki lögerfingjar (t.d. stjúpbörn), eða líknarfélög hljóti arf eftir sig, er nauðsynlegt að gera erfðaskrá.
Breyting á hlutföllum milli lögerfingja: Ef maki eða niðjar (börn, barnabörn) eru á lífi, taka þeir skylduarf samkvæmt lögum. Arfleifanda er þó heimilt að ráðstafa allt að 1/3 hluta eigna sinna að vild með erfðaskrá. Ef engir skylduerfingjar eru til staðar, má ráðstafa öllum eignunum.
Sérstakar kvaðir eða fyrirmæli: Ef arfleifandi vill setja kvaðir á arf (t.d. ef hætta er á að skylduerfingi fari ráðleysislega með féð).
Barnlausir einstaklingar: Ef einstaklingur á enga lögerfingja á lífi renna eigur hans sjálfkrafa í ríkissjóð, nema gerð hafi verið erfðaskrá.
Skilyrði fyrir gerð og hæfi til að arfleiða
Til þess að erfðaskrá sé gild verður arfleifandi að uppfylla ákveðin hæfisskilyrði samkvæmt 34. gr. erfðalaga nr. 8/1962:
Aldur: Arfleifandi verður að vera orðinn fullra 18 ára eða hafa stofnað til hjúskapar.
Andlegt hæfi: Arfleifandi verður að vera svo heill heilsu andlega að hann sé fær um að gera ráðstöfunina á skynsamlegan hátt . Ef andlegt hæfi brestur við gerð erfðaskrár getur hún orðið ógild.
Meðferð arfs samkvæmt lögerfðaflokkum ef engin erfðaskrá er gerð
Fyrsta erfð (maki og niðjar):
Ef hinn láti á bæði maka og börn (eða aðra niðja, t.d. barnabörn), erfir maki 1/3 hluta eignanna en börnin skipta 2/3 hlutum jafnt á milli sín.
Ef enginn maki er til staðar, erfa börnin og aðrir niðjar allan arf.
Ef barn hefur andast á undan arfleifanda, erfa börn þess (barnabörn arfleifanda) þann hlut sem barninu hefði borið.
Önnur erfð (maki, foreldrar og niðjar þeirra):
Ef hinn láti á enga niðja (börn eða barnabörn) en á maka á lífi, tekur makinn allan arf.
Ef maka er ekki til að dreifa, fellur arfurinn til foreldra hins látna að jöfnu.
Ef annað foreldrið er látið, hverfur hlutur þess til barna þess (systkina hins látna).
Þriðja erfð (afi, amma og börn þeirra):
Ef engir erfingjar finnast í fyrstu eða annarri erfð, fellur arfurinn til föðurforeldra og móðurforeldra hins látna (afa og ömmu) og barna þeirra (föðurbræðra, föðursystra, móðurbræðra og móðursystra hins látna).
Hvað ef engir lögerfingjar eru til staðar?
Ef engir lögerfingjar finnast innan þessara þriggja erfðaflokka og engin erfðaskrá liggur fyrir, renna eigur hins látna í ríkissjóð.
Helstu afleiðingar þess að gera ekki erfðaskrá
Sambúðarfólk erfir ekki sjálfkrafa: Ólíkt hjónum hafa sambúðaraðilar engan lögbundinn erfðarétt samkvæmt erfðalögum, óháð því hversu lengi sambúðin hefur varað. Án erfðaskrár erfir sambúðarmaki ekkert.
Stjúpbörn erfa ekki: Stjúpbörn teljast ekki til lögerfingja (niðja) í skilningi laganna. Vilji fólk tryggja stjúpbörnum sínum arf verður að gera erfðaskrá.
Enginn sveigjanleiki með hlutföll: Ekki er hægt að ívilna ákveðnu barni eða skilja eftir tiltekin verðmæti til annarra en lögerfingja.

Comments