top of page

Persónuvernd og vafrakökur

Lögmenn Bæjarlind ehf. leggja áherslu á persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga. Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Ábyrgðaraðili
Lögmenn Bæjarlind ehf. er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram í tengslum við starfsemi félagsins og notkun þessarar vefsíðu.

Fyrirspurnum varðandi persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga má beina á netfangið lblegal@lblegal.is.


Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga
Þegar haft er samband við Lögmenn Bæjarlind, meðal annars í gegnum fyrirspurnarform á vefsíðunni, með tölvupósti eða síma, kunna að vera unnar persónuupplýsingar á borð við nafn, netfang, símanúmer og aðrar upplýsingar sem viðkomandi kýs að veita.

Persónuupplýsingar eru meðal annars unnar í þeim tilgangi að svara fyrirspurnum, meta beiðnir um lögfræðiþjónustu, veita umbeðna þjónustu og eiga samskipti við skjólstæðinga og aðra sem leita til stofunnar.

Vinnsla persónuupplýsinga byggist á þeirri heimild sem við á hverju sinni samkvæmt persónuverndarlöggjöf, svo sem þegar vinnsla er nauðsynleg vegna ráðstafana að beiðni einstaklings áður en samningur er gerður, vegna efnda samnings, til að fullnægja lagaskyldu eða vegna lögmætra hagsmuna. Þegar vinnsla byggist á samþykki er unnt að afturkalla það í samræmi við gildandi reglur.


Fyrirspurnir í gegnum vefsíðuna
Notendum er ráðlagt að senda ekki viðkvæmar persónuupplýsingar, trúnaðarupplýsingar eða ítarlegar upplýsingar um lögfræðileg málefni sín í gegnum almennt fyrirspurnarform vefsíðunnar.

Viðeigandi leið til frekari upplýsingagjafar og samskipta verður ákveðin eftir að samband hefur komist á.


Miðlun persónuupplýsinga
Lögmenn Bæjarlind kunna að nýta þjónustu þriðju aðila við rekstur og upplýsingatækni, svo sem vegna hýsingar vefsíðu, tölvupóstþjónustu og annarrar nauðsynlegrar tæknilegrar þjónustu.

Persónuupplýsingar kunna því að vera unnar af þjónustuaðilum fyrir hönd Lögmanna Bæjarlind að því marki sem nauðsynlegt er vegna viðkomandi þjónustu.

Persónuupplýsingum er að öðru leyti ekki miðlað til þriðja aðila nema heimild eða skylda til þess sé fyrir hendi samkvæmt lögum.


Varðveisla persónuupplýsinga
Persónuupplýsingar eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar og þær lagalegu skyldur sem kunna að hvíla á Lögmönnum Bæjarlind.

Varðveislutími getur því verið mismunandi eftir eðli upplýsinganna og þeirri þjónustu eða samskiptum sem þær tengjast.


Vafrakökur
Vefsíðan notar vafrakökur og eftir atvikum sambærilega tækni. Vafrakökur eru litlar gagnaskrár sem vistaðar eru á tæki notanda þegar vefsíða er heimsótt.

Nauðsynlegar vafrakökur kunna að vera notaðar til að tryggja virkni og öryggi vefsíðunnar. Aðrar vafrakökur, svo sem vegna greiningar á notkun vefsíðunnar, eru notaðar þegar við á í samræmi við val og samþykki notanda.

Við fyrstu heimsókn á vefsíðuna er notanda gefinn kostur á að taka afstöðu til notkunar valfrjálsra vafrakaka. Notandi getur síðar breytt vali sínu eða afturkallað samþykki sitt í vafrakökustillingum síðunnar.


Réttindi einstaklinga
Einstaklingar kunna samkvæmt persónuverndarlöggjöf að eiga rétt á að fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga sinna og aðgang að þeim. Þeir kunna jafnframt að eiga rétt á að óska eftir leiðréttingu eða eyðingu upplýsinga, takmörkun vinnslu, andmæla vinnslu eða nýta önnur réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt lögum.

Einstaklingar eiga jafnframt rétt á að beina kvörtun til Persónuverndar vegna vinnslu persónuupplýsinga.


Öryggi og trúnaður
Lögmenn Bæjarlind leggja áherslu á að persónuupplýsingar séu meðhöndlaðar með viðeigandi öryggi og trúnaði og gera viðeigandi ráðstafanir til að vernda þær gegn óheimilum aðgangi, tapi, breytingum eða annarri ólögmætri vinnslu.

Breytingar á stefnunni
Persónuverndar- og vafrakökustefna þessi kann að taka breytingum, meðal annars vegna breytinga á lögum, starfsemi eða þeirri tækni sem notuð er á vefsíðunni. Gildandi útgáfa stefnunnar er á hverjum tíma birt á vefsíðunni.

Síðast uppfært: september 2026

bottom of page