top of page
Merki lögmanna Bæjarlind

Lögmenn Bæjarlind er lögmannsstofa í Kópavogi sem veitir einstaklingum og fyrirtækjum faglega og persónulega lögfræðiþjónustu. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð og trausta ráðgjöf, með hagsmuni skjólstæðinga að leiðarljósi.

Þjónusta okkar

Almenn lögfræðiráðgjöf

Veitum alhliða lögfræðiráðgjöf og faglega þjónustu fyrir einstaklinga sem og fyrirtæki.

Fjölskyldu- og erfðaréttur

Ráðgjöf og skjalagerð á sviði fjölskyldu- og erfðaréttar, m.a. vegna skilnaðar, erfðaskráa og kaupmála.

Fasteignagallar og húsfelög

Ráðgjöf um réttindi og skyldur eigenda, framkvæmd ákvarðana húsfélaga og úrlausn gallamála.

Skaðabótamál

Ráðgjöf og hagsmunagæsla í skaðabótamálum, m.a. vegna líkamstjóns og annarra bótaskyldra atvika.

Hagsmunagæsla

Hagsmunagæsla í einkamálum og sakamálum með áherslu á vönduð vinnubrögð og réttaröryggi.

Skattaréttur

Fagleg ráðgjöf á sviði skattaréttar fyrir einstaklinga og fyrirtæki, m.a. vegna skattalegra álitaefna í rekstri.

Gjaldþrotaskipti

Við tökum að okkur skiptastjórn, fjárhagslega endurskipulagningu og uppgjör þrotabúa, auk hagsmunagæslu vegna krafna um atvinnurekstrarbann.

Fjármála- og rekstrarráðgjöf

Ráðgjöf um fjármál, rekstur og stefnumótun fyrirtækja með áherslu á traustan rekstur og bætta arðsemi.

Hafðu samband

Takk fyrir að heimsækja síðuna okkar. Ef þú ert að leita að ráðgjöf varðandi tiltekið mál er þér velkomið að hafa samband við okkur.

​

Fyrsta viðtal er að kostnaðarlausu.

​

Við ráðleggjum þér að láta ekki af hendi persónulegar eða trúnaðarupplýsingar fyrr en tengsl lögfræðings og viðskiptavinar hafa verið mynduð, sem munu aðeins eiga sér stað án hagsmunaárekstra. Fullum trúnaði er ávallt heitið. 

​

​

bottom of page